þriðjudagur

Dagbók

Það reynist ómögulegt að sofna. Klukkan að verða 3 og ég ætlaði í 10 skipti að reyna að vakna klukkan 6 til að fara í leikfimi. Ég er að reyna hugsa um allt... Hvar ég er í dag stattur.. afhverju og hvort ég muni einhvern tíman fara aftur þangað sem ég var. Síðan þá er ég alger draummanneskja, ég lifi fyrir draumana mína. Ég get ekki skilið hversu fólk er heimst að lifa alltaf sínu sama einfalda og leiðinlega lífi. Vinna sofa vinna sofa... aftur og aftur...!! Í gamla daga þá sigruðu konungar heiminn. Ef maður nefnir það, þá er maður annaðhvort nazisti eða terroristi!! seg mér.. hver er munurinn á Hitler og Alexander mikla eða Sesar.. ég get ekki séð neinn.. samt eru Alexander mikli og Sesar guðir mannkynssögunar en Hitler ekki... fyrir mér var Hitler sjúkur vondur maður, ,ekki það,, en eina sem ég get séð milli þessara manna var tíminn. Hitler vann meira að segja stærri sigra en þeir báðir þar sem efnahagur Þýskaland var hruninn.

Ég get ekki hætt að hugsa um myndina Million dollar baby. Þvílíkur endir.. líka hugmyndafræðina sem kom fram í The Majestic (2001). að þegar maður gengur inn í bíó þá gengur maður inn í töfraheim, sem er alveg satt.. spurningin er bara.. afhverju getur maður ekki bara verið þar..??

Það er ein af ástæðunum að ég stefni á kvikmyndagerð. Þá get ég hanað minn eigin heim og lifað hann... mig hlakkar mikið til. Ég mun líka læra núna í haust animation. Þá vonandi get ég farið að vinna eitthvað í því.

Mesti óvinur minn er tíminn... staðreyndin er bara sú að ég hef þegar tapað stríðinu við hann. Nú þarf ég bara að þjást rólega undir hans stjórn þar til hann líður.

Jæja. ég ætla að reyna að fara sofa aftur... og svo ætla ég að reyna að vakna og leikfimast.. Gangi mér vel!!!


1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

...please where can I buy a unicorn?

3:26 AM  

Sendu inn athugasemd

<< Home